Seinni leikur í 8 liða úrslitum þriðjud. kl. 17:30

01.09.2014
 KFS gerði góða ferð upp á land á laugardaginn þegar 8 liða úrslit 4. deildar hófust. Var leikið gegn Létti og hafði KFS sigur 0-2 með mörkum þeirra Ólafssona Sigurvins og Guðjóns.

 KFS er því með tveggja marka forystu þegar seinni leikurinn hefst á þriðjudag 2. sept. kl. 17:30. Fer leikurinn líklega fram á Týsvelli. Liðið sem sigrar samanlagt fer áfram í undanúrslit og á því enn möguleika á að fara upp um deild. Eins og ávallt lofar Friðrik Már því að KFS spili skemmtilegan fótbolta eins og hann myndi spila hann. En hann hefur ekkert getað reimað á sig skóna í sumar en verður á hliðarlínunni að lauma trixum til leikmanna. Vonandi að stuðningsmenn mæti á völlinn og styðji strákana áfram í undanúrslitin.

Næst á dagskrá

 

Auglýsingar

Tengill á ksi.is

 
Riðill og leikir KFS 2023
á síðu KSÍ