KFS 0-2 KFR

26.05.2015
KFS spilaði sinn fyrsta heimaleik síðast liðinn laugardag og tapaði fyrir fersku liði KFR. Fyrri hálfleikur var jafn og hefðu bæði lið geta skorað en KFR tókst að koma boltanum í netið á rétt fyrir hálfleik og staðan því 0-1 í hálfleik. KFS reyndi að jafna leikinn en þéttur varnaleikur og skyndisóknir KFR manna skilaði árangri í seinni hálfleik og lokatölur því 0-2.
Næsti leikur KFS er einnig heimaleikur og verður næstkomandi laugardag kl 15:00 á móti Berserkjum.
 

Lið KFS:
 
Halldór Páll; Trausti, Kjartan (Guðjón), Jónas, Einar; Gunnar Páll, Jóhannes, Ingólfur(Birkir ), Egill, Tryggvi; Slinger(Friðrik).
 
KFS 0 - 2 KFR
0-1 Hjörvar Sigurðsson
0-2 Hjörvar Sigurðsson
 
 
 

Næst á dagskrá

 

Auglýsingar

Tengill á ksi.is

 
Riðill og leikir KFS 2023
á síðu KSÍ