Spjallið
Svara
Til baka...
Stórlax í KFS!
Eftir Stjórinn þann 02 Maí 2014 klukkan 08:59
Tryggvi Guðmundsson er kominn formlega til KFS frá H. K. og mætti á sínu 1. æfingu í gær. Þar sýndi hann tilþrif, sem ég hef ekki áður séð á 22 árum á æfingu hjá mínum mönnum. Þvílík unun að horfa á þau. Tryggvi er fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður í toppæfingu og líklega mesti hvalreki til KFS frá upphafi, þótt Hlynur Stefánsson og margir fleiri skori þar mjög hátt. Við bjóðum Tryggva hjartanlega velkominn og munum af okkar veika mætti reyna að gera honum lífið skemmtilegt og bærilegt með KFS. Okkar fyrsti leikur með honum er gegn Gróttu í Bikarkeppninni kl. 13 á morgun. Allir á völlinn!
Til baka...