SpjalliðGetraunirEldra spjall

Spjallið

Svara

Tveir öflugir farnir! Takk fyrir báðir!

Eftir Stjórinn þann 01 Mar 2015 klukkan 14:51
Tveir öflugir leikmenn eru farnir frá okkur og sá 3. búinn að biðja um það, en margendursend félagaskipti á fxai skila sér ekki:

Elías Fannar Stefnisson markmaður er farinn til Gregs Ryder hjá Þrótti R. Hann hefur verið okkar aðalmarkmaður og missirinn er mikill. Hann á 44+5 deilda- og bikarleiki með okkur, auk 10+5 með ÍBV. Loks á hann 1:4 sigurleik í Litháen með U-17-landsliðinu í EM, var allan tímann í markinu.
Við þökkum Fannari fyrir frábæra þjónustu lagði mikið á sig fyrir okkur, búandi í Reykjavík, fyrir engar launagreiðslur. Vona, að Gregg og félagar kunni að meta snilli Fannars, annars er hann velkominn til baka hvenær sem er. Fannar var lykilmaður í að koma okkur upp úr 4. deild í fyrra.

Pétur Runólfsson er farinn heim til B. Í. eftir dygga þjónustu við KFS, síðast 2013, og ÍBV. Pétur fór upp með okkur 2002, þegar við unnum Fjölni á Fjölnisvölli eftir framlengingu og vítakeppni einum færri í úrslitaleik og var lykilmaður í því. Lékum svo 2 ár í 2. deild, þetta hafði örugglega mikil áhrif á framtíð KFS. Vona, að Pétur geti spilað e-ð með B. Í. og notið þessarar frábæru íþróttar áfram, það á hann sannarlega skilið.

Takk báðir fyrir frábæra þjónustu við K. F. S. og gangi ykkur vel!

Til baka...

Titill:

Nafn:

Skilaboð:

tveir =

Spam vörnin, vonandi ekki of erfið. (skrifa tölustaf)

Næst á dagskrá

 

Auglýsingar

Tengill á ksi.is

 
Riðill og leikir KFS 2023
á síðu KSÍ