Spjallið
Svara
Til baka...
Næsta æfing 12.05 á morgun! Jói að mæta!
Eftir Stjórinn þann 11 Jun 2009 klukkan 20:26
Já, margir urðu fyrir vonbrigðum í kvöld, mættu til að sjá Jóhann Rúnar, en hann átti stefnumót annars staðar. Bílar biðu ofan vallar með vonsvikna bílstjóra og farþega. Þeir sáu í staðinn ýmis önnur tilfþrif, en Jói fær tækifæri 12.05 á morgun, enda á hann að verða aðalamaðurinn á laugardag gegn Álftanesi eftir sýninguna um daginn. Heyrst hefur, að Álftanes mæti með njósnara á æfinguna á morgun til að fylgjast með Jóa, þessari nýju stjörnu okkar. Selt verður inn fyrir áhorfendur, ef Jói mætir. Spýtan skorar á hann í einvígi á æfingunni, þeir verða hafðir í sitt hvoru liðinu. Einnig hefur heyrst að ,,mottan" taki frí í gym-inu til að skoða Jóa.
Til baka...