SpjalliðGetraunirEldra spjall

Spjallið

Svara

Næsta æfing!

Eftir Stjórinn þann 18 Jul 2009 klukkan 15:51
Kl. 16.15 á morgun. Óljóst, hvort leikur ÍBV og Fram fer fram. höldum þá þessum tíma, á Helgafellsvelli.

Næsta æfing!

Eftir þann 19 Jul 2009 klukkan 06:59
http://mbl.is/mm/frettir/sjonvarp/?fl=0;media_id=25846;play=1&ref=fpsjonvarp ... eigum við að ræða þetta eitthvað.. obs mínúta 2:29..

Næsta æfing!

Eftir Spýtan þann 19 Jul 2009 klukkan 12:41
Ég hélt að Svenni hefði verið í ræktinni!!!!

Næsta æfing!

Eftir Stjórinn þann 19 Jul 2009 klukkan 13:18
Eftirfarandi agareglur verða lagðar fyrir menn á æfingu á eftir til samþykktar. Þær eiga að taka gildi í dag og gilda ekki aftur á bak. Komið með jákvæðar ábendingar, það verður hlustað.

Agareglur K. F. S. 19/7 2009:

1. Leikmenn mæta á réttum tíma á æfingar og hlaupa 5 aukahringi, ef þeir eru of seinir. Komist þeir ekki, láta þeir vita á heimasíðunni eða tala við þjálfarann fyrirfram.
2. Menn tala ekki illa um samherja eða þjálfara, en mega grínast að vissu marki.
3. Verði mönnum á/komi upp deila, á æfingum, takast þeir í hendur, eða skilja sáttir.
4. Daginn fyrir leik eru ekki stundaðar harðar tæklingar. Allir, sem eru líklegir leikmenn, mæta, nema vinna hindri þá.
5. Menn detta ekki í það viku fyrir leik og smakka ekki áfengi daginn fyrir leik.
6. Menn mæta á réttum tíma í leiki/ferðalög, nema vinni hindri þá, eða flug hingað.
7. Menn sitja jákvæðir á varamannabekknum og hvetja félaga sína. Óánægju með val má ræða lauslega við þjálfarann, en ítarlega daginn eftir.
8. Menn, sem teknir eru út af heilsa varamanni sínum eða snerta hann til marks um viðurkenningu á hans framlagi.
9. Menn sparka ekki í hluti við útafskiptingar.
10. Menn henda aldrei búningi félagsins í jörðina í reiðikasti. Þjálfarinn ákveður refsingu við því.
11. Menn sitja á varamannaskýli það sem eftir er leiks, eftir að hafa verið teknir út af, hvetja samherja sína og fara með liðinu í búningsklefa eftir leik til að skila búningi, nema vinna krefji annars. Þá tilkynna menn þjálfara það. Menn eiga ekki samskipti við aðra en liðið, þjálfara, meðan á leik stendur, nema aðstæður krefji/leyfi.
12. Menn reyna að teygja með félögunum eftir æfingar og ræða við þá.
13. Menn borga félagsgjöld innan viku frá tilkynningu um ógoldin gjöld.
14. Menn biðja þjálfarann um skýringar, frekar en að gagnrýna hann, bæði inn á við og út á við.
15. (Endurtekin/gróf) brot á ofanverðu geta varðað (strangri) refsingu, allt að brottvikningu úr félaginu. Þjálfarinn ákveður einfaldari refsingar, stjórnin við endurteknum brotum.

Vestmannaeyjum, 19. júlí 2009



,

Hjalti Kristjánsson, þjálfari

Vinsamlega prentið þetta út fyrir ykkur sjálfa!

Næsta æfing!

Eftir Stjórinn þann 19 Jul 2009 klukkan 13:25
Komið með ábendingar/umræður í hópinn á æfingu, ekki hér. Bara sett hér upp til að geta prentað þetta út og hugsað um það fyrir æfingu. Vantar eitthvað í þetta t. d.?

Næsta æfing!

Eftir Tanni þann 19 Jul 2009 klukkan 14:52
Hahahaha. Djöfu...snilld þetta dæmi á mbl.is Svenni, þú ert albinóum til sóma. Grettir minnir mig á Philip Seymour í eh hlutverki.

Næsta æfing!

Eftir mottan þann 19 Jul 2009 klukkan 23:34
hverjir eru í stjórnini?

Næsta æfing!

Eftir Formaðurinn þann 20 Jul 2009 klukkan 12:43
Stjórnina skipa: Hjalti Úrsus, Benni Ólsari, Raggi taug og Bjarni Ármanns.

Til baka...

Titill:

Nafn:

Skilaboð:

fimm =

Spam vörnin, vonandi ekki of erfið. (skrifa tölustaf)

Næst á dagskrá

 

Auglýsingar

Tengill á ksi.is

 
Riðill og leikir KFS 2023
á síðu KSÍ