Spjallið
Svara
Til baka...
Nýr leikmaður boðinn velkominn!
Eftir Stjórinn þann 12 Apr 2011 klukkan 16:29
Björgvin Már Þorvaldsson, 25 ára center, er kominn til okkar frá Í. R. Við bjóðum hann hjartanlega velkominn, byrjar með okkur strax á laugardag og ætlar að koma sér hratt í form. Ef það tekst eru sóknarmennirnir okkar komnir með mjög verðugan keppinaut um stöðu í liðinu. Björgvin er nefnilega með sterk fótboltagen, það sannaði hann í yngri flokkunum. Miðað við síðasta leik veitti ekki af því að styrkja hópinn! Von er á fleiri félagaskiptum fljótlega, síðasti leikur situr enn í mér, vil a.m.k. geta mætt með 14 leikmenn, helst 16-18. Stefnan er sett á 2. deild og því þarf miklar framfarir frá leikjunum að undanförnu. Björgvin gæti verið hluti af þeirri áætlun, gefum honum tækifæri á að sanna það.
Til baka...